Skurðstofa

Sími: 432-1200
 
Skurðstofa er staðsett á 3. hæð sjúkrahússins og er opin 10 mánuði á ári, alla þriðjudaga og fimmtudaga.  Þar starfa auk læknis,  hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði.
 

Á deildinni er ein skurðstofa þar sem framkvæmdar eru ýmsar skurðaðgerðir s.s. æðahnútaðgerðir, kviðslitsaðgerðir, ýmsar endaþarmsaðgerðir, blettatökur, handaraðgerðir, ýmis konar smáaðgerðir á húð ofl.  Auk þess eru gerðar magaspeglanir, blöðruspeglanir og endaþarmsspeglarnir. Allar aðgerðir á deildinni eru gerðar í deyfingum þar sem ekki er hér starfandi svæfingarlæknir, en yfirleitt eru einnig gefin róandi lyf. Gerð eru u.þ.b. 650 inngrip á ári auk göngudeildarstarfsemi, s.s. saumtaka, sáraeftirlit o.s.frv.

Allar sprautumeðferðir sem framkvæmdar eru á sjúkrahúsinu í tengslum við meðferð á háls- og bakvandamálum fara fram á skurðdeild og er deildin mjög vel tækjum búin til þess, m.a. er þar gott gegnumlýsingartæki.

Deildin hefur til umráða þriggja rúma stofu, eins konar vöknun,  þar sem einstaklingar jafna sig  eftir þörfum að aðgerð lokinni.

Í tengslum við skurðdeildina er einnig starfrækt sótthreinsun sem sér um að sótthreinsa það sem þarf fyrir allar deildir HVE Stykkishólmi og Stykkishólmsapótek.
  
Sjúklingar eru settir á biðlista fyrir aðgerðir, speglanir o.s.frv. eftir skoðun hjá sérfræðingi eða skv.tilvísun frá öðrum læknum.

 

Síðast uppfært 30.03.2011

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE