Endurhæfing

 

Yfirsjúkraþjálfari:  Hrefna Frímannsdóttir
Sími:  432-1280


Endurhæfingardeildin hefur aðstöðu á tveimur stöðum í húsinu.  Annars vegar á jarðhæð þar sem aðallega fer fram göngudeildarstarfsemi, hins vegar á fyrstu hæð þar einkum fer fram meðhöndlun inniliggjandi sjúklinga á Háls- og bakdeild. Aðstaðan er svo nýtt eftir þörfum þar fyrir utan.  Aðstaðan á fyrstu hæð er nýleg, en hún var tekin í notkun árið 2002.  Alls nemur húsrými Endurhæfingardeildar um 520 m2.  Einnig á deildin  samstarf við Sundlaug Stykkishólms varðandi notkun fyrir bæði hóp-  og einstaklingsmeðferð/-æfingar.
 

Endurhæfingardeild HVE Stykkishólmi þjónustar inniliggjandi sjúklinga á sjúkrahúsinu, þ.e. Háls- og bakdeild og almennri sjúkradeild og er þannig hluti af þeirri læknisþjónustu sem veitt er á spítalanum. Einnig er veitt göngudeildarþjónusta, sem einkum gagnast íbúum svæðisins.
 

Á endurhæfingardeildinni starfa 5-6 sjúkraþjálfarar ásamt deildarritara og sinna þeir öllum deildunum eftir því sem þörf er hverju sinni. 

Á Háls- og bakdeild felst meðferð í sérhæfðum aðferðum og æfingaprógrammi, sem sjúklingar eiga að fylgja  sjálfir eftir útskrift, fræðslu og kennslu varðandi líkamsbeitingu og líkamsstjórn.  Sjúklingarnir mæta til sjúkraþjálfara að meðaltali 2x á dag og auk þess í hópæfingar í sundlaug 1x á dag. Endurhæfing er þannig mjög stór hluti meðferðar á háls- og bakdeild.
  
Á sjúkradeild er sjúklingum veitt sú meðferð sem þurfa þykir hverju sinni.  Þar er unnið að því að viðhalda og/eða bæta líkamlegt ástand sjúklinga með liðkandi og styrkjandi æfingum, færniæfingum, verkjameðferð og almennri endurhæfingu. 
 

Síðast uppfært 01.02.2011
 
 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE