Háls- og bakdeild

 

Sjúkrahúslæknir Jósep Blöndal

Deildarstjóri Hrafnhildur Jónsdóttir

 

Háls- og bakdeild St. Franciskusspítala var opnuð 1992. Deildin annast greiningu og meðferð bak- og hálsvandamála og tekur við sjúklingum alls staðar að af landinu.

Eingöngu er tekið við sjúklingum á deildina eftir tilvísun frá læknum.

Á deildinni eru 13 rúm fyrir inniliggjandi sjúklinga,sem dvelja að meðaltali 2 vikur(2 x 5 daga) að undangengnu mati sérfræðings. 

Öll meðhöndlun er einstaklingsbundin og felur í sér:

  • Sértækt æfingaprógramm fyrir þau vöðvakerfi, sem styðja við hrygginn og verja hann áföllum.
  • Æfingakerfi til að draga úr verkjum
  • Þjálfun vöðva,sem beitt er,þegar bakinu er hlíft
  • Almenna stellingafræði
  • Æfingar í vatni - þ.e. án álags
  • Verkjameðferð,svo sem sprautur,sem gefnar eru í  gegnumlýsingu. 
  • Lyfjameðferð er haldið í lágmarki
  • Fræðslu í formi fyrirlestra
  • Einstaklingsbundna fræðslu,sem lýtur að vinnu og tómstundum
  • Almenna líkamsþjálfun
  • Slökunaraðferðir
     

Langflestir sjúklinganna koma fyrst á stofu sérfræðings, þar sem tekin er sjúkrasaga, gerð nákvæm skoðun og  meðferðin skipulögð. 
 

Á deildinni starfa sérfræðingur, deildarlæknir, sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingur, geðhjúkrunarfræðingur og starfsmenn. Náið samstarf er á milli þessa fagaðila. Þá tekur deildin einnig við nemum í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands.

 

Við innlögn á Háls- og bakdeild, fræðsla...

Háls- og bakdeild - stundaskrá...

 

Síðast uppfært 01.02.2011
  
 

 
 
 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE