Læknisþjónusta
 

Læknisþjónusta á heilsugæslustöðvum HVE...

 

 

Heilsugæslustöðin í Stykkishólmi er H2 stöð, þ.e. þar starfa 2 heilsugæslulæknar og skipta með sér bráðavöktum fyrir svæðið.

 

Augnlæknir 

Guðrún J.Guðmundsdóttir kemur í Stykkishólm 4 sinnum á ári.

Þar veitir hún almenna augnlæknisþjónustu og fara tímapantanir fram á heilsugæslustöðinni í kjölfar auglýsinga hvert sinn.

Samtímis Guðrúnu kemur ávallt gleraugnasali. 

  

Háls, nef og eyrnalæknir

Þórir Bergmundsson háls, nef og eyrnalæknir kemur einnig á heilsugæslustöðina í Stykkishólmi 4 sinnum á ári. Hann sinnir háls-, nef- og eyrnavandamálum en aðgerðir gerir hann á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Tímapantanir fara fram  á heilsugæslunni í kjölfar auglýsinga hvert sinn.
 

Síðast uppfært 01.02.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE