Heimahjúkrun
 

Heimahjúkrun á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Hjúkrunarfræðingar sinna hjúkrun í heimahúsum eftir beiðni lækna, sjúklinga sjálfra eða aðstandenda.

 

Tilgangur þjónustunnar er að fólk geti búið á heimilum sínum þrátt fyrir að heilsubrestur komi í veg fyrir að það geti sinnt sér sjálft að öllu leyti.

 

Þjónustan fer fram á dagvinnutíma og er ekki útkallsvakt eða vaktþjónusta.

Stefnan er að einstaklingar haldi sem bestri færni sem lengst.

Heimahjúkrun á að vera hjálp til sjálfshjálpar.
Ekki er greitt fyrir þjónustu heimahjúkrunar.
 

 

 

Síðast uppfært 01.02.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE