Um HVE Ólafsvík

 

Stjórnendur

Yfirlæknir Ólafur Pétur Jakobsson

Yfirhjúkrunarfræðingur Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir

Svæðisfulltrúi Ásgeir Ásgeirsson  

 

Í Ólafsvík er starfrækt heilsugæslustöð sem veitir almenna heilsugæsluþjónusu fyrir íbúa  Snæfellsbæjar sem nær yfir Staðarsveit, Breiðuvík, Hellissand, Rif og Ólafsvík. Fjöldi íbúa á starfssvæðinu er um það bil 1700.


Heilsugæslustöðin er H2 stöð þar sem gert er ráð fyrir 2 læknum.
Við stöðina starfa nú um 10 manns.

 

Heilsugæslustöð hefur verið starfrækt í Ólafsvík frá árinu 1971. Fyrsta húsnæðið var að Hjarðartúni 6, síðan flytur stöðin í núverandi húsnæði í lok árs 1986. Starfssvæði stöðvarinnar er Snæfellsbær sem er Fróðárhreppur, Staðarsveit, Breiðuvík, Hellissandur, Rif og Ólafsvík.  

Heilsugæslustöðin er ágætlega búin, með  slysastofu, rannsóknarstofu, tækjum til röntgenmyndatöku o.fl.

Í húsnæði stöðvarinnar er sjálfstætt rekin tannlæknaþjónusta og við hana starfa tannlæknir og tvær aðstoðarstúlkur. Einnig hefur sjúkraþjálfari aðstöðu í stöðinni.

 

 

 

Síðast uppfært 06.01.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE