Heimahjúkrun
 

Heimahjúkrun á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Hjúkrunarfræðingur annast heimahjúkrun í samvinnu við lækni stöðvarinnar. 

 

 Markmið heimahjúkrunar er að gera sjúklingum og öldruðum kleift að dvelja heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.  Fari einstaklingur  að heiman eða verði breytingar á högum hans sem heimahjúkrun þarf að vita um, er nauðsynlegt að láta heimahjúkrun vita. 


Heimahjúkrunin er einstaklingum að kostnaðarlausu, en greiða þarf fyrir sum hjálpartæki og áhöld sem Tryggingarstofnun ríkisins úthlutar svo og öll lyf er viðkomandi notar.
 
Heimahjúkrun er veitt á dagvinnnutíma.
 

 

 

 

Síðast uppfært 19.05.2010 

 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE