Úr Sögu HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands var formlega stofnsett 1. janúar 2010 og studdist við reglugerð heilbrigðisráðherra, frá 24. apríl 2009 (Sjá skjal). Með því urðu að einni stjórnsýslulegri heild átta sjálfstæðar stofnanir á Vesturlandi. Allar þessar stofnanir höfðu áður tilheyrt heilbrigðisumdæmi Vesturlands, sbr. reglugerð nr. 785/2007 þótt tvær þeirra séu í raun utan hinnar hefðubundnu landshlutaskiptingar.
Sameining heilbrigðisstofnana á Vesturlandi hafði átt sér talsverðan aðdraganda, bæði hafði umfang sameiningar verið tekið til endurskoðunar og jafnframt tímasetningar.
Ákvörðun var endanlega tekin með bréfi, dags. 12.05.09 þar sem ráðherra tilkynnti að hann hefði falið forstjóra Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi (SHA) að hafa með höndum verkstjórn í sameiningarferlinu og leiða þá vinnu sem framundan væri. Jafnframt tilkynnti ráðherra að hann hefði ákveðið að flytja sama forstjóra í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands frá og með 1. janúar 2010.
Undirbúningur að sameiningu þessara stofnana hófst þegar í stað með þátttöku allra forstöðumanna sem störfuðu innan stofnananna á þeim tíma. Á haustdögum fékk verkefnisstjóri sér til liðs framkvæmdastjóra lækninga og hjúkrunar á SHA við faglega samræmingar- og undirbúningsvinnu. Þessir aðilar voru síðan fluttir til í starfi frá 1. janúar og gegna sambærilegum störfum og áður en nú fyrir stofnunina í heild.
Fjórar af þeim átta stofnunum sem sameinuðust voru sjálfstæðar heilsugæslustöðvar en aðrar fjórar voru jafnhliða heilsugæslustöðvar og sólarhringsstofnanir.
Tenglar
Saga Sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi
Saga Heilsugæslustöðvarinnar Borgarnesi
Saga Heilsugæslustöðvarinnar Búðardal
Saga Heilsugæslustöðvarinnar Grundarfirði
Saga Heilbrigðisstofnunarinnar Hólmavík
Saga Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga
Saga Heilsugæslustöðvarinnar Ólafsvík
Saga Heilsugæslustöðvarinnar og St. Franciskusspítalans Stykkishólmi
Síðast uppfært 25.05.2010