Ung- og smábarnavernd

 

Markmið  

Markmið ung- og smábarnaverndar er að stuðla að því að börn fái að þroskast við þau bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.

 

Með reglubundnum skoðunum er fylgst með heilsufari og þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs og boðið upp á ónæmisaðgerðir.  Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna með fræðslu og ráðgjöf og þannig stuðlað að því að börnunum sé búin bestu mögulegu uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma.  Mikilvægt er að uppgötva sem fyrst frávik hvað heilsufar og þroska varðar og gera viðeigandi ráðatafanir.

 

Unnið er eftir tilmælum landlæknis um heilsuvernd barna 0-5 ára...

 

Fyrirkomulag

Skömmu eftir fæðingu berst fæðingatilkynning á þá heilsugæslustöð sem sinnir svæðinu sem barnið býr á. Foreldrum er ráðlagt að hafa samband við sína heilsugæslustöð fljótlega eftir að heim er komið af fæðingadeildinni.

 

Foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar og að koma síðan í kjölfarið á heilsugæslustöðina með barnið í skoðanir. Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi ummönnun barnsins og eigin líðan.

 

Þegar barnið er sex vikna gamalt er læknisskoðun á heilsugæslustöð og við 3ja mánaða aldur hefjast bólusetningar. Hefðbundnar bólusetningar eru framkvæmdar samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu. Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd umfram þessar skipulögðu skoðanir.

 

Skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd...

Fræðsla...

 

 

Veldu þína heilsugæslustöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um ung- og smábarnavernd:

 

Akranes...

Borgarnes... 

Búðardalur...

Grundarfjörður...

Hólmavík...

Hvammstangi...

Ólafsvík...

Stykkishólmur... 

 

Síðast uppfært 12.05.2010 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE