Skólaheilsuvernd
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðvum sjá um heilsuvernd skólabarna í viðkomandi byggðarlagi.
Markmið skólaheilsuverndar
Markmið heilsuverndar skólabarna er að stuðla að því að skólabörn fái að þroskast við sem bestar andlegar, líkamlegar og félagslegar aðstæður.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru fræðsla og heilsuefling, bólusetningar, skimanir og skoðanir og umönnun veikra og slasaðra barna ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
Fyrirkomulag
Starfsfólk heilsugæslustöðva vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Veldu þína heilsugæslustöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um skólaheilsuvernd:
Akranes...
Borgarnes...
Búðardalur...
Grundarfjörður...
Hólmavík...
Hvammstangi...
Ólafsvík...
Stykkishólmur...
Síðast uppfært 30.04.2010