Sjúkraflutningar
Undir starfssvæði sjúkraflutninga hjá HVE heyra átta starfsstöðvar þ.e. Akranes, Borgarnes, Ólafsvík, Grundarfjörður, Stykkishólmur, Búðardalur, Hólmavík og Hvammstangi.
Á þessum starfsstöðvum eru 15 sjúkrabifreiðar og um 40 sjúkraflutningamenn.
Fjöldi sjúkraflutninga á svæðinu eru um 1500 á ári.
Allar sjúkrabifreiðarnar eru eins búnar, en helsti búnaður sjúkrabifreiðar er: Hjartarafstuðtæki, súrefni, tæki til öndunarhjálpar, búnaður til lyfjagjafar, búnaður til að aðstoða við fæðingu, sáraumbúðir, spelkur og fleira.
Bifreiðarnar eru svo vel búnar að í raun og veru er um að ræða bráðamóttöku á hjólum.
Yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE er Gísli Björnsson. gisli.bjornsson@hve.is s. 432 1080.
Ráðinn hefur verið umsjónarlæknir með sjúkraflutningum hjá HVE. Helsta hlutverk hans er að fylgjast með faglegum þáttum, eins og lyfjamagni og tegundum í sjúkrabílum, einnig fagleg umsjón með menntun og endurmenntun o.s.frv.
Linda Krisjánsdóttir er umsjónarlæknir sjúkraflutninga hjá HVE. linda.kristjánsdóttir@hve.is
Úköll vegna sjúkraflutninga fara í gegnum 112.
Síðast uppfært 12.04.2011