Mæðravernd

  

Markmið mæðraverndar

  • að stuðla að heilbrigði móður og barns á meðgöngu
  • að veita faglega umönnun, stuðning, fræðslu og ráðgjöf
  • að greina áhættuþætti og frávik frá eðlilegri meðgöngu sem fyrst og gera viðeigandi ráðstafanir

 

Stuðst er við klíniskar leiðbeiningar landlæknis um Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu.

 

Fyrirkomulag

Mæðravernd stendur öllum verðandi mæðrum/foreldrum til boða og er þeim að kostnaðarlausu. Hver heilsugæslustöð sinnir þeim sem búsettir eru á  þjónustusvæði stöðvarinnar eða hafa heimilislækni á stöðinni.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra, hjúkrunarfræðinga og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á.

 

Hægt er að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður á hverri stöð en einnig má finna fjölbreytt fræðsluefni um meðgöngu og fæðingu á fræðslusíðunni.

 

Veldu þína heilsugæslustöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um mæðraverndina:

 

Akranes...

Borgarnes... 

Búðardalur...

Grundarfjörður...

Hólmavík...

Hvammstangi...

Ólafsvík...

Stykkishólmur...

 

Síðast uppfært 12.05.2010

 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE