Læknisþjónusta í heilsugæslu
Innan HVE eru læknar starfandi á átta heilsugæslustöðvum. Heilsugæslulæknarnir sinna hefðbundnum heimilislækningum auk vaktþjónustu vegna slysa og bráðveikra allan sólarhringinn. Auk daglegra viðtalstíma hafa heilsugæslulæknar fasta símatíma.
Á sumum heilsugæslustöðvunum eru starfrækt heilsugæslusel sem læknar sinna með reglulegulegri viðveru, auk fastra viðtalstíma á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
Heilsugæslulæknar sinna ennfremur mæðravernd, ung- og smábarnavernd og skólaheilsuvernd.
Sérfræðingar í öðrum greinum læknisfræðinnar en heimilislækningum hafa móttöku á flestum heilsugæslustöðvum með reglulegu millibili, s.s. augnlæknar, háls- nef- og eyrnalæknar og kvensjúkdómalæknar.
Veldu þína heilsugæslustöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um læknisþjónustu:
Akranes...
Borgarnes...
Búðardalur...
Grundarfjörður...
Hólmavík...
Hvammstangi...
Ólafsvík...
Stykkishólmur...
Síðast uppfært 12.05.2010