Heimahjúkrun

 

Heimahjúkrun er veitt einstaklingum sem vegna skertrar færni þurfa aðstoð við atafnir daglegs lífs og / eða sérhæfða hjúkrun vegna alvarlegra veikinda. Heimahjúkrun er veitt einstaklingum sem búa innan þjónustusvæðis HVE og að mati læknis eða hjúkrunarfræðings þurfa á heimahjúkrun að halda.

 

Markmið heimahjúkrunar er að

  • gera einstalkingum kleift að dveljast heima við sem eðlilegastar aðstæður eins lengi og unnt er þrátt fyrir veikindi og /eða skerta færni.
  • veita þjónustu byggða á þekkingu, kærleika og virðingu sem tekur mið af þörfum hvers einstaklings og í samráði við hann.

 

Fyrirkomulag

Hjúkrunarfræðingur kemur í fyrstu vitjun og metur hjúkrunarþörf einstaklingsins og skipuleggur þjónustuna út frá því mati.

Hjúkrunarfræðingur hefur umsjón með og skipuleggur hjúkrunina í náinni samvinnu við skjólstæðinginn, aðstandendur hans og aðra þjónustuaðila.
Heimahjúkrun er sinnt af hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum sem annast alla þá hjúkrun, líkamlega og andlega sem við á og hægt er að framkvæma við þær aðstæður sem heimilið og annar aðbúnaður býður upp á. Stefnt er að því að gera skjólstæðinginn eins sjálfbjarga og óháðan og unnt er, innan þeirra marka sem sanngjarnt má telja miðað við heilsu og líkamsþrek. Hjálpin á með öðrum orðum að vera hjálp til sjálfshjálpar.

 
Heimahjúkrun getur ýmist verið tímabundin eða til lengri tíma, og metur hjúkrunarfræðingur í samráði við einstaklinginn, hversu lengi hann þarfnast þjónustunnar. Útskrift úr heimahjúkrun fer fram í samráði við þjónustuþega.


Hvað felst í heimahjúkrun ?

Heimahjúkrun felur í sér umönnun / þjónustu sem hjúkrunarfræðingur/sjúkraliði veitir á heimilum einstaklinga.

Umönnunin getur t.d. verið:

  • Almenn aðhlynning
  • Aðstoð við böðun og hreinlæti
  • Lyfjagjafir og umsjón lyfja
  • Sáraskiptingar
  • Önnur hjúkrunaraðstoð t.d. blóðþrýstings og blóðsykursmælingar
  • Ráðgjöf ýmiskonar
  • Andlegur stuðningur
  • Útvegun hjálpartækja


 
Fari einstaklingur að heiman eða aðrar breytingar verða á högum hans sem heimahjúkrun þarf að vita um, verður einstaklngur eða aðstandandi að tilkynna það.

 

Kostnaður

Heimahjúkrunin er einstaklingum að kostnaðarlausu, en greiða þarf fyrir sum hjálpartæki og áhöld sem Tryggingarstofnun ríkisins úthlutar svo og öll lyf er viðkomandi notar.


Beiðni um heimahjúkrun

Hjúkrunarfræðingar heimahjúkrunar taka á móti beiðnum um heimahjúkrun.  Umsóknir geta borist frá einstaklingnum sjálfum eða aðstandendum hans, símleiðis.
Beiðni/umsókn um heimahjúkrun frá heilbrigðisstarfsmönnum verður að berast skriflega á þar til gerðu eyðublaði til heimahjúkrunar. 
 

 

Veldu þína heilsugæslustöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um heimahjúkrun:

 

Akranes...

Borgarnes... 

Búðardalur...

Grundarfjörður...

Hólmavík...

Hvammstangi...

Ólafsvík...

Stykkishólmur... 

 

 

Síðast uppfært 10.05.2010

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE