Sjúkrahúsþjónusta á HVE

 

Á HVE Akranesi er deildaskipt sjúkrahús með fjórum legudeildum, nokkrum dag- og göngudeildum auk skurð- og svæfingadeildar.

Legudeildirnar eru 10 rúma handlækningadeild, 10 rúma kvennadeild,  18 rúma lyflækningadeild og 14 rúma öldrunarlækningadeild.

Dag- og göngudeildir skiptast í  dagdeild skurðdeildar, dagdeild kvenna, dagdeild lyflækninga og slysa- og aðgerðastofu.

 

Á HVE Hólmavík er 11  rúma sjúkradeild sem skiptist í  10 hjúkrunarrými og 1 bráðarými.

 

Á HVE Hvammstanga er 20 rúma sjúkradeild sem skiptist í 18 hjúkrunarrými og 2 sjúkra- og bráðarými.

 

Á HVE Stykkishólmi er 13 rúma sérhæfð 5 daga deild fyrir háls- og bakvandamál, auk þess 10 rúma sjúkradeild sem skiptist í 6 hjúkrunarrými og 4 sjúkra- og bráðarými. 

 

 

Síðast uppfært 15.04.2011

 

 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE