Lyfjaendurnýjanir

 

Hægt er að senda rafræna beiðni um endurnýjun fastra lyfja til þriggja mánaða til læknaritara heilsugæslustöðva. 

Athugið að einnig er hægt að endurnýja lyf í símatímum læknaritara eða heilsugæslulækna. Varðandi þá þjónustu vísast í upplýsingar á viðkomandi heilsugæslustöð, í upplýsingar - símanúmer. 

  • Eingöngu er hægt að fá lyf sem fólk notar að staðaldri með þessum hætti.
  • Ekki er hægt að fá fjölnotaseðil eftir þessari leið, heldur verður að koma á stofu til læknis eða hafa beint samband við lækni vegna þess.
  • Ekki er hægt að fá sterk verkjalyf, ávanalyf eða eftirritunarskyld lyf afgreidd með þessum hætti.
  • Nauðsynlegt er að hafa nákvæmar upplýsingar um lyfið, heiti þess, styrkleika, hve oft það er tekið á dag, svo og hvaða apotek á að afgreiða lyfið.
  • Mikilvægt er fyrir sjúklinga að verða ekki lyfjalausir og því best að fá lyf endurnýjuð 3-4 dögum áður en síðasti skammtur er búinn.  
  • Reikna má með að afgreiðsla lyfja taki allt að 2 virka daga.

 

 

ENDURNÝJUN LYFSEÐILS


*  Veldu þína heilsugæslustöð:
*  Fullt nafn:
*  Kennitala:
*  Símanúmer:
*  Netfang:
*  Heiti lyfs:
*  Skammtastærð (innihald í milligr.):
*  Hversu oft er lyfið tekið á dag:
*  Fjöldi taflna sem óskað er eftir:
*  Hvar viltu nálgast lyfseðilinn?
Ef Apótek, þá hvaða:
Athugasemdir:

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Sláðu inn textann á myndinni:

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.4306000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE