25. janúar 2012 11:48

Umsóknir um starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar

Starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands var auglýst laust til umsóknar í lok desember s.l. með umsóknarfresti til 20. janúar 2012.  Sjö umsóknir bárust og eru umsækjendur eftirtaldir í stafrófsröð:

  • Helga Atladóttir, hjúkrunarforstjóri, Höfða dvalar- og hjúkrunarheimili, Akranesi
  • Herdís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri heilbrigðis- og upplýsingatæknideild LSH,
  • Hrefna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sölufulltrúi, Kópavogi   
  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, verkefnastjóri þróunar- og gæðamála, HVE, Akranesi
  • Jórlaug Heimisdóttir, sérfræðingur á sviði eftirlits og gæða, Landlæknisembættið, Reykjavík
  • Margrét Rögn Hafsteinsdóttir,  sérfræðingur í styrkingu heilbrigðismála, UNICEF/Palestína
  • Ólöf Inga Birgisdóttir, hjúkrunardeildarstjóri, HVE, Akranesi.

Í  samræmi við  36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 verða umsóknir nú sendar til stöðunefndar framkvæmdastjóra hjúkrunar sem starfar á vegum velferðarráðuneytis.  Nefndin metur faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra hjúkrunar á heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur.  Nefndin skal skila rökstuddu áliti til þess sem ræður í stöðuna innan sex vikna frá því að umsóknarfresti lýkur.  Ráða má hvern þann hjúkrunarfræðing til starfa samkvæmt þessari grein sem talinn hefur verið hæfur.

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE