7. september 2010 10:25
Unnið að læknamönnun á Vesturlandi
Eins og kunnugt er, þá eru blikur á lofti í læknamálum víða um land, einkum í heilsugæslu. Vesturland hefur ekki farið varhluta af umbrotum á þessu sviði. Skýringar hvað varðar umdæmi HVE eru ekki eingöngu þær efnahagslegu þrengingar sem þjóðin glímir við um þessar mundir, a.m.k. ekki með beinum hætti. Þessar aðstæður koma engu að síður illa við nýja stofnun sem er í uppbyggingu og þróun.
Þar sem nafn stofnunarinnar hefur borið á góma í fjölmiðlum að undanförnu er eðlilegt að greint sé á þessum vettvangi í stuttu máli frá aðstæðum eins og þær blasa við:
Akranes: Mönnun er ásættanleg um þessar mundir og sem stendur ekki alvarlegur vandi uppi.
Borgarnes: Einn læknir hefur nýlega látið af störfum fyrir aldurs sakir en starfar þó í 25% stöðuhlutfalli áfram. Tekist hefur að ráða lækni í u.þ.b. 50% starf í stað hans. Unnið er að ráðningu annars læknis nú á næstu dögum sem starfa mun um tveggja mánaða skeið og annars væntanlega með sambærilegum hætti eftir áramót. Afleysingaþjónusta um helgar er tiltæk. Einn læknir er búsettur í Borgarnesi og gegnir fullu starfi sem yfirlæknir. Brýnt er til lengri tíma litið að bæta mönnun í Borgarnesi í ljósi þess hve héraðið er annasamt.
Búðardalur: Þar hefur annar tveggja lækna látið af störfum eftir nokkurra missera starf og hverfur til framhaldsnáms. Unnið er að afleysingaþjónustu.
Grundarfjörður: Þar situr læknir í samræmi við skipan undangenginna ára.
Hólmavík: Læknir situr þar og festa hefur verið í læknisþjónustu á Ströndum um langt skeið.
Hvammstangi: Þar hafa undanfarin ár verið starfandi tveir læknar. Yfirlæknir lætur nú af starfi sínu sem slíkur en mun vinna áfram í hlutastarfi á staðnum og að hluta til í Svíþjóð. Annar þeirra sem starfarð hefur á Hvammstanga um árabil flytur nú heim eftir ársdvöl í Noregi og tekur til starfa á ný. Fyrirhugað er að hann muni að hluta starfa áfram í Noregi a.m.k. næsta árið.
Ólafsvík: Einn læknir hefur verið starfandi undanfarin ár í Ólafsvík sem er tveggja lækna hérað skv. hefðbundinni skilgreiningu. Hann hefur látið af störfum að sinni. Lausn hefur fengist á læknisþjónutu til áramóta með hugsanlegri framlengingu óbreytt til vors.
Stykkishólmur: Yfirlæknir heilsugæslu hefur látið af störfum fyrir aldurs sakir eftir áratuga störf Heilsugæslulæknir sem starfað hefur við hlið hans hefur sömuleiðis látið af störfum og horfið til framhaldsnáms. Lausn hefur fengist á læknisþjónutu til áramóta með hugsanlegri framlengingu óbreytt til vors.
Læknisstöður sem losnað hafa, sbr. framangreint hafa verið auglýstar til umsóknar í tvígang. Viðbrögð hafa verið afar takmörkuð en þreifingar og viðræður standa yfir við nokkra aðila.
Það er ásetningur framkvæmdastjórnar HVE að leita allra leiða svo skapa megi ásættanlegt starfsumhverfi fyrir lækna og búa þannig í haginn að það þyki áhugavert fyrir þá og fjölskyldur þeirra að flytja á svæðið, hefja þar störf og fasta búsetu.