12. ágúst 2010 23:17
HVE fær tvo gæðastyrki
Fyrir skömmu afhenti heilbrigðisráðherra 16 styrki til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Alls bárust 54 umsóknir og í heild voru til ráðstöfunar 2,4 milljónir króna. Í hlut Heilbrigðisstofnunar Vesturlands komu 2 styrkir, annars vegar verkefnið Rafræn gæðahandbók heilbrigðisstofnunar Vesturlands í læknisfræðilegri myndgreiningu og hinsvegar Samþætting heimahjúkrunar og heimaþjónustu á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
Styrkupphæð í hverju tilviki nemur kr. 150.000,oo. Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt gæðastyrkina árlega frá árinu 2001, en styrkirnir hafa verið veittir í í samræmi við stefnumörkun heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum til ársins 2010. Í úthlutunarnefnd eru fulltrúar frá ráðuneytinu og Landlæknisembættinu. Sjá frétt ráðuneytis http://www.heilbrigdisraduneyti.is/frettir/nr/3277