14. júlí 2010 08:37

HVE eflir þjónustu við bráðveika og slasaða í Flatey á Breiðafirði

Heilbrigðistofnun Vestulands (HVE) hefur gert samkomulag við Framfarafélag Flateyjar um  að HVE muni koma að áframhaldandi uppbyggingu búnaðar vegna bráðaveikinda og slysa í Flatey á Breiðafirði í samstarfi við Framfarafélag Flateyjar.     

 

Í samkomulaginu felst m.a. að HVE mun sjá um endurnýjun og viðhald þess búnaðar sem er í eigu Framfarafélags Flateyjar  í samráði við Fagstjóra sjúkraflutninga hjá HVE. Þá mun HVE sjá um endurnýjun lyfja í lyfjakistu félagsins. Lyfjategundir og magn verða í samráði við umsjónarlækni sjúkraflutninga hjá HVE. Valdir félagsmenn í Framfarafélagi Flateyjar verða í vettvangshjálparliði (first responder) fyrir Flatey og munu starfa á sjálfboðaliðagrundvelli.  HVE mun koma að þjálfun vettvangshjálparliða í samráði við fagstjóra sjúkraflutninga og umsjónarlækni sjúkraflutninga hjá HVE.  Tengiliður stjórnar Framfarafélags Flateyjar mun halda utan um ákvæði  samkomulagsins og bera ábyrgð á framkvæmd þess í Flatey.
Samkomulagið tók gildi 01.07.2010.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE