25. júní 2010 09:53
Vettvangshjálparliðar (First responders)
Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Ferðaþjónustan í Húsafelli ásamt einstaklingum frá ferðaþjónustugeiranum í nágrenni Húsafells hafa gert með sér samkomulag vegna bráðaútkalla í Húsafelli og nágrenni.
Vegna fjarlægðar frá Borgarnesi má reikna með um 30-40 mínútna forgangsakstri áður en sjúkrabíll kemst í Húsafell og nágrenni. Getur sá tími lengst enn frekar eftir umferð, veðri og færð.
Í Húsafelli geta verið um 3-5000 manns á góðum helgum og einhverjir tugir eða hundruð manna eru í sumarbústöðum þar allt árið.
Gert er ráð fyrir að vettvangshjálparliðar séu kallaðir út til að tryggja fyrstu viðbrögð við slysum og bráðaveikindum í Húsafelli og nágrenni þess.
Samkomulagið felur í sér að tilgreindir aðilar og starfsfólk þeirra gangist undir námskeið í vettvangshjálp (first responder) og geti þannig brugðist við slysum og bráðaveikindum í Húsafelli og nágrenni þar til sjúkrabíll kemur á staðinn.
Áðurgreindir vettvangsaðilar (first responder) vinna á sjálfboðaliðagrundvelli en Heilbrigðisstofnun Vesturlands leggur til tæki og búnað fyrir sveitina og sér um þjálfun vettvangsliða.
Sá búnaður sem vettvangshjálparliðarnir hafa nú yfir að ráða er ýmis búnaður til fyrstu hjálpar m.a. skel, súrefnis- og sáratöskur, hálskragar og síðast en ekki síst hjartastuðtæki.
Allur þessi búnaður verður geymdur í húsnæði sundlaugarinnar í Húsafelli.
Nú hafa vettvangshjálparliðarnir gengist undir námskeið í vettvangshjálp (first responder) en nokkur hópur sjálfboðaliðanna hefur áralanga reynslu í störfum fyrir Björgunarsveitina Ok.
Þetta er tilraunarverkefni nýrrar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í uppsetningu vettvangshjálparliða. Gera má ráð fyrir að slíkt fyrirkomulag henti vel á mjög víðfeðmu svæði stofnunarinnar.
Neyðarlínan 112 eða sjúkraflutningamenn í Borgarnesi sjá um að kalla vettvangsliðana út.
