11. júní 2010 13:39
Duglegar stelpur á Skaganum
Tvær 12 ára Skagastúlkur, þær Hildigunnur Ingadóttir og Birta Rakel Jónsdóttir komu færandi hendi í heimsókn á HVE Akranesi föstudaginn 11. júní.
Þær höfðu ásamt vinkonu sinni Selmu Rögnvaldsdóttur haldið tombólu og gáfu allan ágóðann, alls 5194 kr. til sjúkrahússins. Á myndinni eru þær Hildigunnur og Birta Rakel.
HVE Akranesi færir þeim stöllum bestu þakkir fyrir.
