10. júní 2010 10:52

Hollvinasamtök HVE Hvammstanga

Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga var haldinn í síðustu viku. Frá stofnun samtakanna fyrir tæpum 4 árum hafa þau keypt tæki fyrir rúmlega 22 milljónir til heilbrigðisstofnunar á Hvammstanga, þar af  fyrir um 5 milljónir á árinu 2009. Á síðasta ári voru m.a. keypt sérhönnuð húsgögn fyrir aldraða ætluð m.a. í setustofu, sónar vegna mæðraskoðana,  sjúkralyftari með segli auk nokkurra smærri tækja m.a. í sjúkrabíla.

Stjórn samtakanna hefur reynt að beina fjármunum í þann farveg að það komi skjólstæðingum stofnunarinnar að sem bestum notum og létti einnig vinnu starfsmanna.  Helstu tekjur holvinasamtakanna eru frjáls framlög einstaklinga, félaga og fyrirtækja og auk þess sala minningarkorta.  Fjárhagsleg staða samtakanna er sterk og munu þau halda áfram að styðja af aflefli við starfstöð Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Hvammstanga. Ágúst Oddson yfirlæknir sem verið hefur formaður samtakanna frá upphafi lét af stjórnarstörfum á fundinum. Í stað hans var kjörinn formaður Guðrún Elín Benónýsdóttir deildarstjóri hjúkrunar- og sjúkrasviðs.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE