26. maí 2010 11:00

Nýr upplýsingavefur HVE

Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir opnaði nýjan upplýsingavef HVE kl. 11,oo í dag við formlega athöfn í fundarstofu stofnunarinnar á Akranesi.  Starfshópur innan vébanda HVE hefur unnið ötullega að undirbúningi og skipulagi vefsins frá því um áramót.  Vefurinn er hugsaður sem öflugur og skilvirkur upplýsingavettvangur þar sem sjúklingar og áhugafólk geta sótt jafnt upplýsingar og fróðleik og um starfsemina á sérhverri af hinum átta starfsstöðvum stofnunarinnar.  Upplýsingavefurinn er hannaður af  hugbúnðarfyrirtækinu Nepal í Borgarnesi.

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE