25. maí 2010 16:27

Stefnumótun fyrir HVE

Tæplega 50 lykilstjórnendur frá öllum starfsstöðvum HVE komu saman á daglöngum fundi  í Borgarnesi þann 17. maí s.l. til að fjalla um stefnumótun fyrir Heilbrigðisstofnun Vesturlands.  Unnið hefur verið að þessu verkefni frá því í febrúar og hafa hátt á annað hundrað áhugasamir starfsmenn lagt þar hönd á plóg með ýmsum hætti.   

Á fundinum var fjallað um helstu þætti starfseminnar, hugmyndir starfsmanna og stjórnenda og faglega þætti, bæði til lengri og skemmri tíma.   Áætlað er að vinna að þessu verkefni fram eftir sumri og að formleg stefnumótun til fimm ára verði kynnt á haustdögum.  Verkið er unnið í samvinnu við heilbrigðisráðuneyti og Capacent undir handleiðslu Friðfinns Hermannssonar, ráðgjafa.  

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE