25. janúar 2012 11:48

Umsóknir um starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar

Starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands var auglýst laust til umsóknar í lok desember s.l. með umsóknarfresti til 20. janúar 2012.  Sjö umsóknir bárust og eru umsækjendur eftirtaldir í stafrófsröð:

  • Helga Atladóttir, hjúkrunarforstjóri, Höfða dvalar- og hjúkrunarheimili, Akranesi
  • Herdís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri heilbrigðis- og upplýsingatæknideild LSH,
  • Hrefna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sölufulltrúi, Kópavogi   
  • Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, verkefnastjóri þróunar- og gæðamála, HVE, Akranesi
  • Jórlaug Heimisdóttir, sérfræðingur á sviði eftirlits og gæða, Landlæknisembættið, Reykjavík
  • Margrét Rögn Hafsteinsdóttir,  sérfræðingur í styrkingu heilbrigðismála, UNICEF/Palestína
  • Ólöf Inga Birgisdóttir, hjúkrunardeildarstjóri, HVE, Akranesi.

Í  samræmi við  36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 verða umsóknir nú sendar til stöðunefndar framkvæmdastjóra hjúkrunar sem starfar á vegum velferðarráðuneytis.  Nefndin metur faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra hjúkrunar á heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur.  Nefndin skal skila rökstuddu áliti til þess sem ræður í stöðuna innan sex vikna frá því að umsóknarfresti lýkur.  Ráða má hvern þann hjúkrunarfræðing til starfa samkvæmt þessari grein sem talinn hefur verið hæfur.

meira...
3. janúar 2012 10:00

Fjölgun í súkraflutningum á Vesturlandi frá 2010 - 2011

Alls voru sjúkrabifreiðar hjá HVE á Vesturlandi kallaðar út 1636 á árinu 2011 á móti 1447 áríð 2010. Aukningin var 13.1%.
Mest varð aukning útkalla í Búðardal 30.3% en þar fóru útköllin í 99
Á Akranesi voru sjúkrabifreiðar kallaðar út 767  á árinu 2011 en það er um 19.3% aukning á milli ára.
Átta starfsstöðvar sjúkraflutninga eru hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranes, Borgarnes, Búðardalur, Grundarfjörður,  Hólmavík, Hvammstangi,  Ólafsvík og Stykkishólmur. meira...


 

meira...
2. janúar 2012 12:08

Lionsklúbburinn Bjarmi á Hvammstanga afhendir neyðarbúnað

Lionsklúbburinn Bjarmi afhenti á næst síðasta degi ársins 2012 Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga neyðarbúnað sem nota á ef til þess kemur að sinna þurfi hópslysi. Í ljós kom eftir sameiginlega hópslysaæfingu í Víðidal nú íhaust að nokkuð vantaði á þann búnað sem stofnunin hefur yfir að ráða.
Leitað var til ýmissa félagasamtaka í héraði um að styrkja búnaðarkaupin.
Lionsklúbburinn Bjarmi kom á mjög myndarlegan hátt að þessu verkefni og
afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga í dag ýmiss konar búnað til
notkunar á vetvangi hópslysa alls að verðmæti um 300 þúsund krónur. Fram
kom í máli stjórnenda stofnunarinnar að nú væri stofnunin vel búin til að takast á við stórt útkall þó svo að vonandi komi ekki til þess. Færðu þau félögum í Bjarma innilegar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning. Að öðrum ólöstuðum hefur Hólmfríður Berentsdóttir deildarstjóri starfað ötullega að þessum búnaðarkaupum fyrir hönd stofnunarinnar. Allmargir félagar í Lionsklúbbnum Bjarma mættu við afhendinguna til að skoða búnaðinn og var virkni hans reynd á nokkrum þeirra.

meira...
19. desember 2011 10:22

Fyrsta ársskýrsla HVE komin út

Ársskýrsla HVE fyrir árið 2010 er komin út en það var fyrsta heila starfsár stofnunarinnar.  Eins og  kunnugt er,  þá sameinuðust átta heilbrigðisstofnanir á Vesturlandi 1. janúar það ár.   Í skýrslunni má finna stutta lýsingu á starfsemi hinna einstöku starfseininga og tölulegar upplýsingar úr starfseminni, dregnar saman eins og þær birtast í sjúkraskrárkerfum HVE og öðrum gagnagrunnum.  Þá fylgir ársreikningur HVE árskýrslu.


Í aðfaraorðum forstjóra segir m.a. að það sé hans mat að sameining stofnana á vestur- og norðvesturlandi hafi komið til framkvæmda við erfiðar kringumstæður þegar verulega hafi þrengt að í þjóðfélaginu.  Meginmarkmið hafi því verið að verja og styrkja eftir megni innviði góðrar heilbrigðisþjónustu í umdæminu í efnahagslegum mótbyr og að verjast frekari áföllum.  
Ársskýrsla HVE er aðgengileg á upplýsingavef HVE og verður aðeins prentuð í takmörkuðu upplagi.

meira...
18. nóvember 2011 07:54

Listsýning – Úr ýmsum áttum.

Um þessar mundir er uppi sýning á verkum Jóhönnu Jónsdóttur í anddyri HVE Akranesi.  Sýnd eru um 40 olíumálverk sem öll hafa verið unnin á þessu ári.  Sýninginn gengur undir heitinu „Úr ýmsum áttum“. 

Jóhanna nam við Myndlistaskóla Mosfellsbæjar árið 2010, málaði á bað- og eldhúsflísar í eigin fyrirtæki árin 1986 til 2000 og var jafnframt við nám í flísamálum hjá Tessera Design í London á árunum 1986 til 1994.  Jóhanna er fædd á Akranesi árið 1951.

Sýningin stendur í það minnsta fram í miðjan desember og eru öll málverkin á til sölu.
 

meira...
16. nóvember 2011 09:47

Þjónusta hjartalæknis á starfssvæði HVE

Tekist hefur samkomulag við Hróbjart Darra Karlsson, sérfræðing í hjartasjúkdómum um að vera með stofumóttöku á HVE Akranesi, einn dag í viku að jafnaði, á fimmtudögum.  Stefnt er að því að hjartalæknisþjónusta verði jafnframt veitt víðar á starfssvæði HVE en það er liður í því að færa sérfræðiþjónustu nær íbúum svæðisins eins og tök eru á.  Fyrsta skrefið verður stigið í janúar n.k. en þá mun Hróbjartur verða með móttöku á Snæfellsnesi.  Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. Væntingar eru um að hægt verði að auka þennan þátt í starfseminni enn frekar í náinni framtíð.

meira...
8. nóvember 2011 03:27

Sykursýkismóttaka

Sykursýkismóttaka hefur verið opnuð við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.  Þessi þjónusta er í boði eftir hádegi á fimmtudögum og hefur Guðni Arnar Guðnason innkirtlasérfræðingur umsjón með starfseminni.   Jafnframt starfar Katrín Snjólaugsdóttir hjúkrunarfræðingur við þetta verkefni.  

 

Í Borgarnesi hefur þjónusta  í þessa veru verið í boði frá árinu 2008 en þá eins og nú var mikil  umræða um ofþyngd Íslendinga og einnig að aukning væri á sýkursýki, týpu 2.  Ákveðið var að tveir hjúkrunarfræðingar  sinntu sykrursýkismóttöku á heilsugæslustöðinni ásamt heimilislæknum.  Einstaklingar voru boðaðir í viðtal, teknar blóðprufur, gerðar mælingar, rannsóknir og fræðsla veitt um  lífstíl og mataræði.  Þegar niðurstaðan var komin, þá fékk einstaklingurinn viðtal hjá lækni sem framkvæmdi nákvæmari skoðun og greindi frá útkomu úr rannsóknum.  Í fjölskylduprógrammi kemur öll fjölskyldan í viðtal í upphafi en síðan fer meðferðin að mestu fram í samstarfi við foreldra. Skólahjúkrunarfræðingar ráðleggja jafnframt foreldrum ofþungra barna að nýta sér þessa þjónustu.
Vonir standa til að hægt verði að efla þennan þátt í starfsemi HVE þannig að þjónusta af þessu tagi verði í boði hvarvetna á starfssvæði stofnunarinnar.
 

meira...
25. október 2011 03:37

250 milljóna króna niðurskurður

Mikill niðurskurður fjárveitinga blasir við á HVE skv. boðuðu fjárlagafrumvarpi og vegna umtalsverðs rekstrarhalla á þessu ári.  Aðgerðaráætlun framkvæmdastjórnar liggur í meginatriðum fyrir. Fjárlagafrumvarp ársins 2012 gerir ráð fyrir um 95 m.kr. niðurskurði samanborið við fjárlög árið 2011.  Þá mun rekstur þessa árs  að öllu óbreyttu skila neikvæðri afkomu sem getur numið um 80 m.kr. sem taka þarf tillit til við gerð rekstraráætlunar.  Því  þarf að gera ráð fyrir umtalsverðum rekstrarhalla til viðbótar á næsta ári miðað við svipaða starfsemi.  Að öllu óbreyttu er ljóst að stofnunin mun því þurfa að stefna að niðurskurði sem nemur allt að 250 millj. króna, eða um 8,5% af rekstri.   Viðræður standa yfir við ráðuneyti um ásættanlega  leið svo koma megi til móts við niðurskurðarkröfur stjórnvalda hvað varðar rekstur stofnunarinnar á næsta ári.      

meira...
7. september 2011 04:51

Síðsumar í garðinum

Ljósmyndari HVE náði þessum skemmtilegu myndum í sjúkrahúsgarðinum þar sem börn frá leikskólanum Teigaseli á Akranesi léku sér í froðubaði við listaverkið Hringrás...

 

meira...
4. ágúst 2011 02:00

Erill í sjúkraflutningum á Vesturlandi í júlímánuði

Mikill erill var í sjúkraflutningum á Vesturlandi í nýliðnum júlímánuði. Alls hafa verið skráð samanlagt um 200 útköll sjúkraflutninga á öllum átta starfsstöðvum HVE. Á Akranesi voru útköllin 92 í júlí sem er nokkuð yfir meðaltali.
Mikið hefur verið um millistofnanaflutninga i júlí sem skapast að einhverju leyti af lokunum deilda sjúkrahúsa yfir sumarmánuðina, aðrir sjúkraflutningar eru einkum vegna veikinda, umferðarslysa og annarra óhappa.

 

meira...
30. maí 2011

Náttúran og ég

15. febrúar 2011

Starfsemisáætlun HVE 2011

22. nóvember 2010

Heimsókn á Rannsókn

12. nóvember 2010

300 fæðingar á Akranesi

14. október 2010

Ársfundur HVE 13. okt. 2010

4. október 2010

Ársfundur HVE

1. október 2010

Rekstur HVE í jafnvægi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE