Stoð- og þjónustudeildir
Endurhæfing
Sjúkraþjálfari er í hlutastarfi og sinnir einstaklingum sem dvelja á hjúkrunar- og sjúkradeild eftir þörfum.
Eldhús
Eldhúsið sér um matseld fyrir vistfólk og starfsmenn HVE á Hvammstanga. Starfsemi er í eldhúsinu daglega frá 8 til 20. Í eldhúsi starfa sex starfsmenn í 3,6 stöðugildum.
Ræsting
Við ræstingu starfa þrír starfsmenn í rúmlega 2 stöðugildum. Mikil áhersla er lögð á sýkingavarnir og vönduð vinnubrögð. Starfsfólk vinnur samkvæmt skráðum verkferlum.
Húsvörður
Húsvörður sinnir ýmiskonar smærra viðhaldi, sér um ýmsa aðdrætti fyrir stofnunina, akstur í dagþjónustu og fleiri tilfallandi verkefni.
Sjúkraflutningar
HVE á Hvammstanga hefur yfir að ráða tveimur velútbúnum sjúkrabílum. Fjórir sjúkraflutningsmenn eru til skiptis á bakvöktum allan sólarhringinn og fara alltaf tveir í útkall. Sjúkrabílageymslan er að Hafnarbraut 3.
Síðast uppfært 25.05.2010