Leiðbeiningar við innlögn
Hér á eftir koma nokkrar hagnýtar upplýsingar varðandi hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga.
Þegar fólk flytur á stofnunina er því úthlutað herbergi og fylgir rúm, náttborð og fataskápur. Sængur, kodda, rúmfatnað, rúmteppi, handklæði og þvottapoka leggur stofnunin til en þó er algengt að fólk komi með sínar eigin sængur og kodda, jafnvel rúmfatnað og rúmteppi. Æskilegt er að fólk hafi með sér værðarvoð.
Sjálfsagt er að fólk hafi með sér eigin húsgögn og persónulega muni eftir því sem pláss leyfir. Tenglar fyrir sjónvarp og síma eru á herbergjum. Fólk greiðir sjálft sinn símakostnað.
Bent skal á að upp geta komið þær aðstæður að flutningur á milli herbergja sé nauðsynlegur. Markmiðið er að einstaklingar geti haldið sínum venjum eins og hægt er og hjálpað sér sem mest sjálfir, en fái aðstoð starfsfólks eftir þörfum.
Reykingar eru ekki leyfðar á stofnuninni, innan húss, nema í sérstöku reykingaherbergi.
Engin geymsla er fyrir fjármuni á stofnuninni og því ekki æskilegt að fólk geymi hjá sér háar peningaupphæðir. Gert er ráð fyrir að aðstandendur séu fólki sínu innan handar við kaup á fatnaði, greiðslu reikninga o.þ.h.
Máltíðir eru framreiddar í borðsal og er gert ráð fyrir að heimilisfólk borði þar nema um veikindi eða sérstakar aðstæður sé að ræða.
Morgunverður kl. 08:30 - 09:00
Hádegisverður kl. 11:30 - 12:00
Síðdegiskaffi kl. 15:00 - 15:30
Kvöldverður kl. 18:00 - 18:30
Góð aðstaða er fyrir fótsnyrtingu og hárgreiðslu í kjallara sjúkrahússins og getur heimilisfólk nýtt sér þá þjónustu.
Síðast uppfært 25.05.2010