Félagsstarf
Fjölbreytt félagsstarf er í boði s.s. föndur, handavinna, söngur, leikfimi, bingó, lestur úr blöðum og spilamennska. Bakstursdagar eru fyrir jólin þar sem bakaðar eru smákökur og skorið út laufabrauð. Einnig eru haldnar ýmsar skemmtanir.
Algengt er að kórar og aðrir hópar eða einstaklingar komi og skemmti heimilisfólki.
Bókasafn er til staðar á stofnuninni og einnig hljóðbækur frá blindrabókasafni.
Prestarnir úr Hvammstanga- og Melstaðarsókn hafa vikulegar helgistundir yfir vetrartímann. Einnig eru messur á stórhátíðum.
Síðast uppfært 10.05.2010