Dagþjónusta
Heilbrigðisstofnunin býður upp á dagþjónustu fyrir eldra fólk í héraðinu. Markmið þjónustunnar er að auðvelda fólki að búa sem lengst á eigin heimili, þrátt fyrir hækkandi aldur og skerta færni. Boðið er upp á samveru og þjónustu í heimilislegu umhverfi.
Innifalið í þjónustunni er hádegisverður og sídegiskaffi. Gestir geta fengið aðstoð við bað og eins er góð aðstaða er til hvíldar. Að öðru leiti taka dagþjónustugestir þátt í þeirri starfsemi sem fyrir er svo sem leikfimi og félagsstarfi.
Síðast uppfært 10.05.2010