Ung- og smábarnavernd

 

 

Ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöðvum HVE...

Skoðanir og bólusetningar... 

 

Hjúkrunarfræðingur og læknir annast ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöðinni, alla miðvikudaga. Tímapantanir eru í síma 432 1300.


Markmið og tilgangur ung- og smábarnaverndar er að fylgjast reglulega með andlegum , líkamlegum og félagslegum þroska barna, til skólaaldurs. Veita ráðgjöf, annast ónæmisaðgerðir, veita foreldrum stuðning og stuðla að því að börnum séu búin bestu uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma.

 

Allar barnafjölskyldur í læknishéraðinu eiga kost á ungbarnavernd, skoðunum og vitjunum heim af hálfu heilsugæslunnar.
Hjúkrunarfræðingur hefur samband við fjölskylduna þegar fæðingartilkynning berst til heilsugæslunnar, en best er að foreldrar hafi samband við heilsugæsluna strax og heim er komið, og láti vita af sér.


Fyrsta heimsókn hjúkrunarfræðings til nýfædda barnsins og foreldra þess, er u.þ.b. viku eftir heimkomu. Fjöldi vitjana er misjafn og fer eftir samkomulagi við foreldra og aðstæðum hverju sinni. Algengt er að fjölskyldur séu heimsóttar 2 - 4 sinnum. Ef einhverjar spurningar vakna milli vitjana, er velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðing símleiðis. Náist ekki samband við hjúkrunarfræðing má skilja eftir skilaboð hjá símavakt, sem kemur boðunum áleiðis. Sími: 432 1300.


Mikilvægt er að foreldrar mæti tímanlega með barnið í skoðun og láti vita ef þeir geta ekki notað bókaðan tíma. Munið að taka með heilsufarsbók og ónæmisskírteini.
 

 

Síðast uppfært 15.04.2011 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE