Skólaheilsuvernd
 

Skólaheilsuvernd á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Lögum samkvæmt  eiga heilsugæslustöðvar að annast heilsuvernd í skólum.

 

Markmið heilsugæslu í skólum er að stuðla að því, að börn fái að þroskast við þau bestu skilyrði sem völ er á.

 

Heilsugæslustöðin hefur með höndum heilsuvernd barna í Grunnskóla Húnaþings vestra og Grunnskólanum Borðeyri. Það má segja að skólaheilsugæslan sé framhald ungbarnaverndarinnar, þar sem fylgst er með þroska og líðan barnanna í skólanum.
Skólahjúkrunarfræðingur starfar í náinni samvinnu við kennara og annað starfsfólk skólanna, og situr í nemendaverndarráði.

 

Auk hefðbundinnar skólaheilsugæslu býður skólahjúkrunarfræðingur upp á fasta viðtalstíma í skólanum, og heilbrigðis og kynfræðslu í ákveðnum bekkjum. Einnig er hægt að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing símleiðis  í s. 432 1300, eða koma skilaboðum í gegnum skóla.
Hjúkrunarfræðingur sér um að koma upplýsingum og fræðslu til starfsfólks skólans ef upp koma sértæk sjúkrdómstilfelli í skólanum.

 

Síðast uppfært 10.05.2010 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE