Mæðravernd

 

Mæðravernd á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Ljósmóðir, ásamt lækni eftir þörfum, sér um reglubundið eftirlit með verðandi mæðrum og veitir þeim fræðslu og ráðgjöf.

 

Mæðraskoðanir fara fram á heilsugæslustöðinni alla fimmtudaga kl. 09:00 – 12:00 Tímapantanir eru í síma 432 1300.


Markmið og tilgangur mæðraverndar er að fylgjast með heilsufari verðandi mæðra á meðgöngunni, vexti og þroska fósturs í móðurkviði. Að greina áhættuþætti á byrjunarstigi og bregðast við þeim. Að stuðla að heilbrigði, vellíðan og auknu öryggi foreldra með því að veita fræðslu og ráðgjöf um meðgöngu og fæðingu.


Verðandi foreldrum er boðið upp á fræðslunámskeið um meðgöngu, fæðingu, sængurlegu, brjóstagjöf, umönnun nýburans og breytingar sem verða í fjölskyldu, við fæðingu barns.
Æskilegt er að fyrsta skoðun fari fram  við 10. viku meðgöngu eða fyrr ef konur vilja og  síðan koma þær að meðaltali 7 – 12 sinnum í skoðun.

 

Við skipulag mærðaverndar er tekið mið af klíniskum leiðbeiningum frá Landlæknisembættinu um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna.

 

Síðast uppfært 15.04.2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE