Hjúkrunarþjónusta
Við heilsugæslustöðina á Hvammstanga starfa tveir hjúkrunarfræðingar sem sinna heimahjúkrun, ungbarna- og mæðraeftirliti, skólaheilsugæslu, auk ýmis konar hjúkrunarþjónustu á stöðinni, s.s. sárskiptingum blóðþrýstingsmælingum, ónæmisaðgerðum og lyfjagjöfum. Einnig sinna þeir margvíslegri fræðslu tengdri heilsuvernd. Einnig starfa þar tveir sjúkraliðar í hlutastörfum við blóðrannsóknir, röntgenmyndatökur, vinnu á skiptistofu, heimahjúkrun og fleira.
Síðast uppfært 25.05.2010