Heimahjúkrun
 

Heimahjúkrun á heilsugæslustöðvum HVE...

 
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvarinnar annast heimahjúkrun fyrir íbúa læknishéraðsins. Sjúkir sem dveljast heima geta fengið heimahjúkrun og á það við um alla aldurshópa.


Markmið heimahjúkrunar er að gera einstaklingum kleift að dveljast heima við sem bestar aðstæður, eins lengi og unnt er, þrátt fyrir veikindi og/eða skerta færni. Einnig að eiga gott samstarf við þjónustuþega, aðstandendur og fagfólk.


Hjúkrunarfræðingur heimahjúkrunar tekur á móti beiðnum um heimahjúkrun. 
Hjúkrunarfræðingur kemur í vitjun, metur þörf einstaklingsins og skipuleggur þjónustuna í samráði hann, heimilislækni og aðstandendur.

Heimilislæknir, sjúkrastofnanir, hjúkrunarfræðingar, aðstandendur eða einstaklingurinn sjálfur getur óskað eftir heimahjúkrun.


Heimahjúkrunin er einstaklingum að kostnaðarlausu, en greiða þarf fyrir sum hjálpartæki og áhöld sem Tryggingarstofnun ríkisins úthlutar. Mikilvægt er að nýta sér þau margvíslegu hjálpartæki sem í boði eru, bæði til þæginda fyrir þann sem þarf hjálp og þann sem hjálpina veitir.


Heimahjúkrun felur í sér umönnun / þjónustu sem hjúkrunarfræðingur veitir á heimilum einstaklinga.
Umönnunin getur verið t.d. almenn aðhlynning, aðstoð við böðun og hreinlæti, lyfjagjafir og umsjón lyfja, sáraskiptingar, önnur hjúkrunaraðstoð t.d. blóðþrýstings- og blóðsykursmælingar, ráðgjöf ýmiskonar, andlegur stuðningur.

 

Heimahjúkrun er veitt á dagvinnutíma.


Fari einstaklingur að heiman eða aðrar breytingar verða á högum hans sem heimahjúkrun þarf að vita um, verður að tilkynna það.

 

 

 

 

Síðast uppfært 25.05.2010 

 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE