Um HVE Hólmavík 

 

Stjórnendur HVE Hólmavík

Yfirlæknir: Guðmundur Sigurðsson

Yfirhjúkrunarfræðingur: Anna Guðlaugsdóttir

Vaktstjóri: Sólveig Hildur Halldórsdóttir

Svæðisfulltrúi: Jóhann Björn Arngrímsson

 

 

HVE Hólmavík skiptist í heilsugæslustöð og hjúkrunardeild.

 

Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu í umdæmi heilsugæslunnar á Hólmavík, sem nær yfir Árneshrepp, Kaldrananeshrepp og Strandabyggð. Íbúafjöldi á svæðinu er tæpl. 700 manns.

 

Hjúkrunardeildin er með átta einstaklingsherbergi  og tvær litlar íbúðir  sem ætlaðar eru fyrir tvo einstaklinga hvor, auk þess er eitt bráðarými, sjúkra- og iðjuþjálfunaraðstaða .

 

Starfsmenn HVE Hólmavík eru um 30 talsins.
 

Saga HVE Hólmavík 

Læknir kom á Hólmavík árið 1903.  Hafði hann aðstöðu í sjúkraskýli að Kópnesbraut 7 en þar var hann ennfremur til heimilis. Heilbrigðisstofnunin á Hólmavík var stofnuð árið 1998, þá sameinuðust  sjúkrahús og heilsugæsla sem áður voru aðskilin í rekstri. 

 

HVE Hólmavík skiptist í heilsugæslustöð og hjúkrunardeild.

 

Heilsugæslustöð hefur verið starfrækt í núverandi húsnæði frá árinu 1985.  Heilsugæslustöðin þjónar íbúum Árneshrepps, Kaldrananeshrepps og Strandabyggðar.  Heilsugæslustöðin er ágætlega búin, með lítilli slysastofu, rannsóknarstofu, tækjum til röntgenmyndatöku og tannlæknastofu. Þar er lyfsala til húsa sem stofnunin rekur.  Á stöðinni er veitt öll grunnheilbrigðisþjónusta, svo sem almennar lækningar, ungbarna- og mæðravernd og heimahjúkrun.

 

Hjúkrunardeildin er með átta einstaklingsherbergi  og tvær litlar íbúðir  sem ætlaðar eru fyrir tvo einstaklinga hvor, auk þess er eitt bráðarými, sjúkra- og iðjuþjálfunaraðstaða.  Hjúkrunardeildin var byggð á árunum 1948-50 sem læknabústaður og sjúkraskýli.  Árið 2003 var tekin í notkun ný viðbygging, samhliða því voru  gerðar endurbætur á eldra húsnæði sem bættu alla aðstöðu heimilismanna og starfsfólks.

 

Læknishéraðið nær yfir Árneshrepp, Kaldrananeshrepp og Strandabyggð. Á þessu sést að héraðið er mjög víðfeðmt og strjálbýlt.  Það getur orðið erfitt yfirferðar á vetrum og oft þarf að  grípa til sérútbúinna farartækja. Farnar eru skipulagðar ferðir í  H-stöð í Árneshrepp.

 

Við stofnunina er vel útbúin sjúkraflutningabifreið .

Síðast uppfært 11.03.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE