Hjúkrunardeild
Á hjúkrunardeildinni eru átta einstaklingsherbergi og tvær litlar íbúðir sem ætlaðar eru fyrir tvo einstaklinga hvor, auk þess er eitt bráðarými, sjúkra- og iðjuþjálfunaraðstaða. Hjúkrunardeildin var byggð á árunum 1948-50 sem læknabústaður og sjúkraskýli. Árið 2003 var tekin í notkun ný viðbygging, samhliða því voru gerðar endurbætur á eldra húsnæði sem bættu alla aðstöðu heimilismanna og starfsfólks.
Aðilar úr félagi eldri borgara á Hólmavík hafa fasta viðveru eftir hádegi á miðvikudögum. Þeir sjá um ýmsar uppákomur t.d upplestur úr bókum og blöðum, stjórna samsöng og spila undir á hin ýmsu hljóðfæri. Þessar samverustundir eru íbúum gulls ígildii.
| Vakt |
432 1406 |
| Sími heimilismanna |
432 1405 |
| Upplýsingar til aðstandenda |
432 1404 |
Heimsóknartímar
Ekki er um sérstaka heimsóknartíma að ræða, en ekki er æskilegt að fólk komi í heimsóknir snemma morguns eða seint á kvöldin.
Síðast uppfært 11.03.2011