Ung- og smábarnavernd

 

Ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöðvum HVE...

Skoðanir og bólusetningar...

 

Í ungbarnaeftirliti er fylgst með vexti og þroska barnsins frá fæðingu til skólaaldurs og foreldrum veitt fræðsla og ráðgjöf.  Hjúkrunarfræðingur vitjar foreldra og barns fyrstu vikurnar eftir fæðingu.  Heilsugæslulæknir og hjúkrunarfræðingur sjá um skoðanir og ónæmisaðgerðir í ungbarnaeftirliti.  Börn eru skoðuð oftar ef einhver vandamál eða sjúkdómar koma upp.  Foreldrum er einnig boðið að hafa samband við hjúkrunarfræðing og fá upplýsingar og ráðgjöf eftir þörfum. 
 

Ungbarnaeftirlit fer fram á þriðjudögum kl. 09:00 - 11:00 

Tímapantanir í ungbarnaeftirlit  eru í síma  432 1400.

 

 

 

Síðast uppfært 11 03 2011 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE