Heimahjúkrun
Hjúkrunarfræðingur og sjúkraliðar annast heimahjúkrun í samvinnu við lækni stöðvarinnar.
Markmið heimahjúkrunar er að gera sjúklingum og öldruðum kleift að dvelja heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Fari einstaklingur að heiman eða verði breytingar á högum hans sem heimahjúkrun þarf að vita um, er nauðsynlegt að láta heimahjúkrun vita.
Heimahjúkrunin er einstaklingum að kostnaðarlausu, en greiða þarf fyrir sum hjálpartæki og áhöld sem Tryggingarstofnun ríkisins úthlutar svo og öll lyf er viðkomandi notar.
Heimahjúkrun er veitt á dagvinnnutíma.
Síðast uppfært 30.04.2010