Heilsuvernd og forvarnir
Heilsuvernd og forvarnir sjúkdóma miða að því að koma í veg fyrir sjúkdóma eða heilsufarsvanda og draga úr fylgikvillum þeirra.
Helstu greinar heilsverndar sem sinnt er á heilsugæslustöðvum eru mæðravernd, ung- og smábarnavernd, skólaheilsugæsla, heilsuvernd aldraðra, ónæmisvarnir, ráðgjöf um kynheilbrigði, geðvernd, áfengis-, tóbaks- og fíkniefnavarnir, slysavarnir, skipulögð sjúkdómaleit og almenn heilbrigðisfræðsla.
Forvörnum er sinnt á öllum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Forvörnum sjúkdóma er oft skipt í 3 stig:
1.Stig - til að koma í veg fyrir heilsufarsvanda með því að hafa áhrif á áhættuþætti í umhverfi eða hjá einstaklingnum sjálfum.
2.Stig - til að stöðva/draga úr sjúkdómseinkennum með því að greina forstig þeirra, t.d. með skimunum.
3.Stig – til að draga úr afleiðingum sjúkdóma með viðeigandi meðferð og endurhæfingu.
Síðast uppfært 30.04.2010