Ung- og smábarnavernd
Ung- og smábarnavernd er á fimmtudögum eftir hádegi. Börn frá fæðingu til 3ja mánaða aldurs eru viktuð og skoðuð í heimahúsum, þar sem hlúð er að brjóstagjöf og nýju hlutverki fjölskyldunnar.
Læknisskoðun er við 6 vikna og 3. mánuða aldurinn og síðan eru skoðanir við 4-5-6-8-10- 12- 18 mánuða aldurinn, einnig þroskaathugun ásamt ónæmisaðgerðum og almennum ráðleggingum um þroska, mataræði, svefn og fl.
Í skoðunum við 2 1/2 og 4 ára aldur er aðaláherslan lögð á sjónpróf og þroskapróf eru gerð í samstarfi við leikskólann Sólvelli.
Foreldrar þurfa sífellt að hafa í huga þroskaskeið barnsins og hve fljót þau eru að framkvæma hlutina. Byrgja skal brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Foreldrar eiga að hafa aga, fáar reglur en fara eftir þeim. Rannsóknir hafa sýnt að það er barninu fyrir bestu þegar fram í sækir. Enginn má vera óbundinn í bíl.
Skyldubólusetning geng smitsömum sjúkdómum er framkvæmd við ungbarnaeftirlit og skólaskoðum barna og unglinga. Nánari upplýsingar má finna t.d. á vefsíðum Landlaeknis.
Síðast uppfært 05.05.2010