Skólaheilsuvernd
 

Skólaheilsuvernd á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Skólahjúkrun

Markmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á. Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd. Skólaheilsugæslan leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra / forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda. Farið er með slíkar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Reglubundnar skoðanir og bólsetning.

 

Reglubundnar skoðanir og bólsetningar
1. bekkur Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling
4. bekkur Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling
7. bekkur Sjónpróf, hæðarmæling, þyngdarmæling og athugun á litaskyni. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta)
9. bekkur Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki, kíkhósta og stífkrampa (ein sprauta).


Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.
Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra áður en bætt er úr því.


Fræðsla / heilbrigðishvatning / forvarnir
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Öll tækifæri sem gefast eru nýtt til að fræða nemendur og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilbrigði. Foreldrar geta leitað eftir ráðgjöf skólaheilsugæslunnar varðandi vellíðan, andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.

 

Svefn, nesti og skjólfatnaður

Reglulegur og nægjanlegur svefn er mikilvægur fyrir heilsu og þroska barna. Börn þurfa að sofa 10-12 klst. á nóttu. Skóladagur nemenda er langur, mikilvægt er að borða reglulega og hafa með sér hollt og gott nesti.

 

Lús

Lúsin kíkir alltaf reglulega í heimsókn yfir skólaárið og því mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega, t.d. vikulega.

 

Á vefsíðum Landlæknisembættisins má finna margt efni til fróðleiks um heilsu og þroska skólabarna og unglinga.

 

Skólahjúkrunarfræðingur í Grunnskóla Grundarfjarðar er: Dagný Ósk Guðlaugsdóttir
432 1350, dagny.gudlaugsdottir@hve.is

 

Síðast uppfært 15.04.2011

 

 
 

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært 25.05.2010 

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE