Heilsuvernd og forvarnir
Bólusetningar gegn Inflúensu
Besta vörnin gegn inflúensu er að láta bólusetja sig, en hún gefur 60 – 90 % vörn hjá einstaklingum yngri en 65 ára. Hjá öldruðum er vörnin aðeins minni. Bólusetningin dregur einnig úr alvarlegum fylgikvillum sýkingarinnar.
Sóttvarnalæknir mælir með árlegri bólusetningu áhættuhópa sem eru meðal annars eftirfarandi:
- Allir einstaklingar eldri en 60 ára.
- Allir einstaklingar undir 60 ára sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Ákveðið hefur verið að þessir hópar fái bóluefnið sér að kostnaðarlausu en þeir þurfa að greiða komugjald á heilsugæslustöð.
Einnig viljum við minna á bólusetningu gegn lungnabógu, einstaklingar sem eru bólusettir eru varðir í 10 ár nema þeir séu með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma þá eru þeir varðir í 5 ár.
Boðið er upp á bólusetningar í fyrirtækjum.
Síðast uppfært 25.05.2010