HVE Búðardal - Ung- og smábarnavernd

 

Ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöðvum HVE...

 

Skoðanir og bólusetningar...  

 

Heilsugæslulæknar og hjúkrunarfræðingar vinna saman að ungbarnavernd. Hún fer fram í Búðardal á miðvikudögum kl. 13:30 - 15:00 og á Reykhólum á mánudögum kl. 13:00 - 16:00. Tímapantanir eru í síma 432 1450 og á mánudögum einnig í síma 434 7717.

 

Hjúkrunarfræðingar fara í vitjanir í heimahús til nýfæddra barna. Best er að foreldrar hafi samband við heilsugæsluna strax þegar heim er komið með nýfætt barn en annars hefur hjúkrunarfræðingur samband þegar fæðingartilkynning hefur borist. Fjöldi vitjana er misjafn og fer eftir samkomulagi við foreldra og aðstæðum hverju sinni en algengt er að fjölskyldur séu heimsóttar 2-4 sinnum.

 

Í ungbarnaverndinni er foreldrum barna frá fæðingu að grunnskólaaldri, veitt fræðsla og stuðningur og fylgst er með vexti, þroska og heilsufari barnanna. Ónæmisaðgerðir eru einnig mikilvægur þáttur í ungbarnaverndinni og er með þeim komið í veg fyrir marga alvarlega sjúkdóma.

 

Fylgt er leiðbeiningum Landlæknisembættisins um heilsuvernd barna 0-5 ára. 

 

 

Síðast uppfært 15.04.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE