HVE Búðardal - Skólaheilsuvernd
HVE Búðardal hefur með höndum skólaheilsuvernd í Auðarskóla í Búðardal og Tjarnarlundi og í Reykhólaskóla. Nú eru um 140 nemendur í þessum skólum. Hjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnum skoðunum yfir árið og læknir kemur í skólann einu sinni á hverjum vetri. Hjúkrunarfræðingur og læknir sinna bólusetningum í sameiningu.
Með skólaheilsugæslu er leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Skólaheilsugæslan er að nokkru leyti framhald ungbarnaverndarinnar en hér er fræðslunni meira beint til barnanna í stað foreldra þeirra áður. Fylgst er með líðan barnanna í skólanum og reynt að uppgötva og bregðast við vandamálum sem sérstaklega tengjast skólagöngunni.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu í öllum bekkjum skólanna. Aðaláherslan er lögð á hin svokölluðu 6 H heilsunnar sem eru hreyfing, hvíld, hamingja, hreinlæti, hugrekki og hollusta. Hugmyndafræðin byggir á því að með því að hugsa vel um heilsuna megi fyrirbyggja sjúkdóma. Hjúkrunarfræðingur hefur einnig með höndum kynfræðslu í efri bekkjum skólanna.
Síðast uppfært 05.07.2010