HVE Búðardal - Læknisþjónusta
Heilsugæslulæknar:
Við HVE Búðardal starfa tveir heilsugæslulæknar sem sinna allri almennri læknisþjónustu sem veitt er í heilsugæslu. Þeir eru með viðtalstíma alla virka daga í Búðardal og á mánudögum á Reykhólum. Tímapantanir eru í síma 432 1450 og á mánudögum einnig í 432 1460. Þeir veita einnig símaviðtöl alla virka daga en panta þarf símaviðtal í síma 432 1450 fyrir kl. 11:30 ef símtal þarf að fást samdægurs.
Læknarnir sinna ungbarnavernd og skólaheilsugæslu ásamt hjúkrunarfræðingum og þeir sinna mæðravernd. Læknir er alltaf á vakt og sinnir þá öllum bráðatilfellum sem upp kunna að koma, vaktsíminn er 112.
Læknar HVE Búðardal veita einnig læknisþjónustu við Hjúkrunarheimilið Barmahlíð á Reykhólum, Hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal og Hjúkrunarheimilið Fellsenda í Miðdölum.
Sérfræðilæknar:
Augnlæknir kemur á 3 mánaða fresti og er með móttöku í Búðardal og einnig á Reykhólum að jafnaði tvisvar á ári.
Háls- nef og eyrnalæknir kemur á 3 mánaða fresti og er með móttöku í Búðardal.
Síðast uppfært 22.02.2012