HVE Búðardal - Hjúkrunarþjónusta
Við HVE Búðardal starfa tveir hjúkrunarfræðingar í hlutastarfi. Annar er staðsettur í Búðardal en hinn á Reykhólum. Þeir starfa í náinni samvinnu við heilsugæslulækna stöðvarinnar.
Hjúkrunarfræðingar sinna heimahjúkrun, ungbarnavernd, skólaheilsugæslu, ónæmisaðgerðum, fræðslu og ráðgjöf. Þeir sinna einnig ýmiskonar hjúkrunarþjónustu í heilsugæslunni s.s. eftirliti, sáraskiptingum, blóðþrýstingsmælingum, rannsóknum, ráðgjöf o.fl. eftir þörfum hverju sinni. Hjúkrunarfræðingar taka einnig þátt í móttöku fyrir slys og bráð veikindi á dagvinnutíma.
Síðast uppfært 22.06.2010