HVE Búðardal - Heimahjúkrun
Hjúkrunarfræðingar annast heimahjúkrun í samvinnu við lækna stöðvarinar.
Beiðni um heimahjúkrun getur komið frá sjúklingi sjálfum, aðstandendum, heimilislækni, hjúkrunarfræðingum, sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum.
Hjúkrunarfræðingur kemur í vitjun, metur þörf einstaklingsins og skipuleggur þjónustuna í samráði við hann, heimilislækni og aðstandendur.
Heimahjúkrun felur í sér umönnun/þjónustu sem hjúkrunarfræðingur veitir á heimilum einstaklinga. Umönnunin getur verið almenn aðhlynning, aðstoð við böðun og hreinlæti, lyfjatiltekt, lyfjagjafir og umsjón með lyfjum, sáraskiptingar og önnur hjúkrunaraðstoð eins og blóðþrýstings- og blóðsykursmælingar, ráðgjöf og andlegur stuðningur.
Markmið heimahjúkrunar er að gera sjúklingum kleift að dvelja heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Fari einstaklingur að heiman eða verði breytingar á högum hans sem heimahjúkrun þarf að vita um er nauðsynlegt að láta heimahjúkrun vita.
Heimahjúkrun er einstaklingum að kostnaðarlausu og eiga allir aldurshópar jafnan rétt til hennar en greiða þarf fyrir sum hjálpartæki og áhöld sem Tryggingastofnun ríkisins úthlutar svo og öll lyf sem viðkomandi notar.
Heimahjúkrun er veitt á dagvinnutíma.
Síðast uppfært 22.06.2010