HVE Búðardal - Heilsuvernd og forvarnir
Hjá HVE Búðardal eru forvarnir og heilsuvernd samtvinnuð öllu almennu starfi fagfólksins. Rætt er um lífstíl og vandamál eins og reykingar, offitu og margt fleira eftir því sem við á þegar fólk leitar til stöðvanna eftir þjónustu. Einnig er sérstaklega boðið upp á ráðgjöf og stuðning fyrir þá sem vilja létta sig.
Ung- og smábarnaverndin, skólaheilsuverndin og mæðraverndin eru sérstakir þættir heilsuverndarinnar þar sem áhersla er lögð á fræðslu um líferni og annað sem stuðlar að heilbrigði.
Bólusetningar gegn inflúensu og lungnabólgubakteríu
Bólusetning gegn árlegri inflúensu gefur 60 - 90% vörn hjá einstaklingum yngri en 65 ára en aðeins minni vörn hjá þeim sem eldri eru. Bólusetningin dregur einnig úr alvarlegum fylgikvillumm inflúensunnar.
Sóttvarnalæknir mælir með því að þessir áhættuhópar láti bólusetja sig árlega gegn inflúensu:
- allir eldri en 60 ára
- allir undir 60 ára aldri sem haldnir eru langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lungnasjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúklinga
Þessir hópar fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en þeir þurfa að greiða komugjald á heilsugæslustöðinni.
Sóttvarnalæknir mælir einnig með reglulegum bólusetningum gegn lungnabólgubakteríu (pneumokokkum) hjá þessum hópum:
- allir eldri en 60 ára (bólusetning ráðlögð á 10 ára fresti)
- allir sem eru án milta hvort sem það er vegna sjúkdóms eða slyss (bólusetning ráðlögð á 5 ára fresti)
- allir sem haldnir eru langvinnum lungna-, hjarta- nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, áfengissýki, illkynja og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum
Aðrar bólusetningar til fullorðinna
Læknar HVE Búðardal veita ráðgjöf um aðrar bólusetningar til fullorðinna, m.a. vegna ferðalaga til annarra landa.
Síðast uppfært 05.07.2010