Ung- og smábarnavernd

 

Ung- og smábarnavernd á heilsugæslustöðvum  HVE...

 

Fyrirkomulag

Hjúkrunarfræðingur hefur samband við fjölskyldu stuttu eftir fæðingu barns og býður þjónustu sína. Hjúkrunarfræðingur vitjar foreldra og barns fyrstu vikurnar eftir
fæðingu og fylgist með þroska barnsins og fræðir foreldrana um umönnun þess.
Ef hjúkrunarfræðingur hefur ekki samband fljótlega eftir heimkomu eru foreldrar beðnir að hafa samband í síma. 432 1430.

Vitjanir eru fyrsta mánuðinn 3 - 4 skipti eftir þörfum hvers og eins. Eftir fyrsta mánuðinn koma foreldrar með barnið á heilsugæslustöðina.
 
Hjúkrunarfræðingar og heilsugæslulæknar sjá um reglubundnar skoðanir í ung- og smábarbarnavernd samkvæmt tillögum landlæknis. 

 

Upplýsingar um skoðanir og bólusetningar...
 

Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef þeir geta ekki mætt í bókaðan tíma og geri ráðstafanir til að fá annan tíma.

Ef barnið er veikt á ekki að koma með það í ungbarnavernd heldur leita til heilsugæslulæknis.

Foreldrar eru hvattir til að leita til hjúkrunarfræðinga ung- og smábarnaverndar eftir ráðgjöf og fræðslu.

 

Hjúkrunarfræðingar ungbarnaverndar eru

Dagný Hjálmarsdóttir
Hrafnhildur Grímsdóttir
Íris B Sigmarsdóttir

 

Tímapantanir og óskir um símaviðtal í síma 432 1430.
  

 

Síðast uppfært 15.04.2011

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Aðalskrifstofur Merkigerði 9, 300 Akranes - S.432 1000 - Kt. 630909-0740 - hve@hve.is - Vefstjóri HVE